Í skýrslunni Lestur er lýðheilsa dregur rithöfundurinn Gerður Kristný upp lifandi mynd af lestrarmenningu í sveitarfélögum landsins og því mikilvæga starfi sem unnið er í leikskólum, grunnskólum og almenningsbókasöfnum. Skýrslan er unnin fyrir Félag íslenskra bókaútgefenda árið 2026 og byggir á viðtölum við um 70 manns, meðal annars starfsfólk skóla og bókasafna, fræðimenn og bókmenntaeldhuga.
Í frásögnum viðmælenda birtist metnaður, hugmyndaauðgi og einlæg trú á gildi bóka. Fjallað er um lestrargleði barna, fjölbreyttan bókakost og bókasöfn sem staði fyrir samveru, fróðleik og ró í amstri dagsins. Jafnframt er bent á tækifæri til að efla lestrarmenningu með skýrari fjárveitingum, betra aðgengi að bókum og stuðningi við það fólk sem kveikir og nærir áhuga á lestri.
Lestur er lýðheilsa er bæði innlegg í umræðu um stöðu bókmenningar og hvatning til að byggja hana upp til framtíðar. Hún á erindi við sveitarstjórnarfólk, skóla, bókasöfn, útgefendur, foreldra og alla sem vilja að bækur og lestrargleði skipi ríkan sess í samfélaginu. Sæktu skýrsluna og kynntu þér hvernig við getum skapað fleiri tækifæri til lesturs fyrir fólk á öllum aldri.