Jan31

Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2023

afhent á Bessastöðum 31. janúar 2024

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti í dag, miðvikudaginn 31. janúar, Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV.

Verðlaunin nema einni milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk og eru kostuð af Félagi íslenskra bókaútgefenda. Nýr verðlaunagripur, Blængur, blásvartur hrafn steyptur í kopar, eftir myndlistarmanninn Matthías Rúnar Siguðrsson, verður afhentur verðlaunahöfum Íslensku bókmenntaverðlaunanna í fyrsta sinn.

Blóðdropann hlaut að þessu sinni:
Eva Björg Ægisdóttir
Heim fyrir myrkur
Útgefandi: Veröld
 
Umsögn lokadómnefndar:
Heim fyrir myrkur er grípandi sálfræðitryllir sem erfitt er að leggja frá sér. Andrúmsloft óhugnaðar og dulúðar er listilega byggt upp og grunsemdum og efa sáð jöfnum höndum í huga lesanda. Sögusviðið er lifandi og vel er unnið úr sögulegum atburðum í bakgrunni frásagnarinnar. Þessi samfélagslegi vinkill, sem snertir á sögu vistheimila á Íslandi, er fléttaður við fjölskyldudrama og hversdagslíf ungs fólks í borgfirsku dreifbýli upp úr miðri síðustu öld og úr verður sannfærandi og afar spennandi frásögn með fjölbreyttu og breysku persónugalleríi. Frásagnaraðferðin er áhugaverð og ísmeygilega unnið með fyrstu persónu sjónarhorn söguhetju sem berst við að ráða í atburði, drauma og flókinn veruleika í nútíð og fortíð um leið og lesandinn berst við hrollinn sem læðist að honum og grípur hann sífellt fastari tökum.
 
Íslensku bókmenntaverðlaunin skiptast  í þrjá flokka og þeir sem að þessu sinni hlutu verðlaunin voru:
 
Barna- og ungmennabækur:
Gunnar Helgason og Rán Flygenring, myndhöfundur
Alexander Daníel Hermann Dawidsson: Bannað að drepa
Útgefandi: Mál og menning
 
Umsögn lokadómnefndar:
Í þessari þriðju bók í seríunni um Alexander er tekist á við stórar spurningar eins og titillinn ber með sér. Stríðsátök, sorg og missir eru í brennidepli en sagan hverfist um nýjan félaga Alexanders, Vola frá Úkraínu. Þessi flóknu málefni eru tækluð með húmor og hlýju þar sem sjónarhorn barnsins ræður för og lesandinn verður virkur þátttakandi í vangaveltum Alexanders. Þar tvinnast vel saman alþjóðlegur atburður og áhrif hans á líf venjulegs fólks á átakasvæðinu og hér heima á Íslandi. Þrátt fyrir grafalvarlegt söguefnið einkennist sagan af leiftrandi frásagnargleði, sem fjörlegar myndir Ránar Flygenring ýta svo enn frekar undir. Eins og í fyrri bókunum er persónusafnið fjölbreytt og litríkt og atburðarásin er spennandi. Bannað að drepa er bók sem er skrifuð af skilningi á hugarheimi barna og virðingu fyrir margbreytileika mannlífsins. Hún veitir ekki endilega einhlít svör við öllum spurningum en býður svo sannarlega upp á lifandi samræður barna og fullorðinna sem lesa hana saman. 
 
Fræðibækur og rit almenns efnis:
Haraldur Sigurðsson
Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi.
Útgefandi: Sögufélag
 
Umsögn lokadómnefndar:
Samfélag eftir máli er yfirgripsmikið verk um sögu og þróun skipulagsmála á Íslandi, einkum í Reykjavík. Ritið byggir á langri og ítarlegri rannsóknarvinnu höfundar, framsetningin er aðgengileg og textinn einkar lipur. Skipulagsfræðin eru sett í samhengi við hugmyndasögu hvers tíma, svo og atvinnu- og lýðræðisþróun, einkum á vesturlöndum, og vísanir í íslenskar og alþjóðlegar bókmenntir og listir þétta verkið og gefa því breiðari skírskotun. Höfundur segir hlutlægt frá, en er gagnrýninn á stefnur og strauma og minnir lesendur oft á að engin algild sannindi eru til í þessum fræðum. Samfélag eftir máli er afar áhugaverð bók um manngert umhverfi okkar, sem skiptir sköpum fyrir samfélagsþróunina, umhverfismál og persónulega líðan okkar allra. Hún á erindi jafnt til fagfólks og almennings, er fagurlega hönnuð og ljóst að hugað er að umhverfisþáttum við gerð hennar.
 
Skáldverk:
Steinunn Sigurðardóttir
Ból
Útgefandi: Mál og menning
 
Umsögn lokadómnefndar:
Ból er efnismikil saga þrátt fyrir að bókin sé ekki ýkja löng. Viðfangsefnið er ástin í öllum sínum fjölbreyttu myndum, en líka missir, tengsl og tengslaleysi, hvort sem er við sjálfa sig eða aðra, umhverfi sitt og náttúru. Ferðalag söguhetjunnar rammar inn frásögnina sem um leið verður innri ferð hennar og uppgjör við lífið. Það er margt sem kraumar undir, líkt og í náttúrunni sem býr sig undir að gjósa, en ferðinni er heitið heim í unaðsreit fjölskyldunnar, Ból, sem er um það bil að verða náttúruöflunum að bráð. Steinunn vefur blæbrigðaríkan textavef sem heldur lesandanum föngnum allt frá upphafi, sagan snertir við honum og tilfinningarnar malla lengi eftir að lestrinum lýkur. Hið ósagða er oft jafn afhjúpandi og það sem sagt er og, líkt og í fyrri verkum Steinunnar, er leikandi írónía í bland við myndríka ljóðrænu einkennismerki textans. Þótt Ból sé að vissu leyti heimsendasaga ræður fegurðin för og það er hún sem situr fastast eftir.
Forseti Íslands setti samkomuna sem sjónvarpað var í beinni útsendingu á RÚV. Því næst flutti Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, stutta tölu. Forseti Íslands kynnti niðurstöður dómnefndar og afhenti verðlaunin. Verðlaunahöfundar ávörpuðu gesti.
 
Katrín Halldóra Sigurðardóttir söng tvö lög við undirleik Hjartar Yngva Jóhannssonar.
 
Fjögurra manna lokadómnefnd valdi verkin úr hópi tuttugu bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna í desember á síðasta ári þegar fimm bækur voru tilnefndar í hverjum flokki. Lokadómnefnd skipuðu þau Hjalti Freyr Magnússon, Kristján Sigurjónsson, Steingerður Steinarsdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Kristín Ingu Viðarsdóttir, sem var formaður nefndarinnar.
 
Eftirfarandi höfundar voru tilnefndir í flokki Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans:
 
Arnaldur Indriðason: Sæluríkið, útg. Vaka Helgafell
Eva Björg Ægisdóttir: Heim fyrir myrkur, útg. Veröld
Skúli Sigurðsson: Maðurinn frá São Paulo, útg. Drápa
Stefán Máni: Borg hinna dauðu, útg. Sögur útgáfa
Steindór Ívarsson: Blóðmeri, útg. Storytel og Sögur útgáfa
 
Dómnefnd fyrir tilnefningar skipuðu: Björn Ingi Óskarsson, Kristján Sigurjónsson, formaður dómnefndar, og Mjöll Snæsdóttir.
 
Eftirfarandi höfundar voru tilnefndir í flokki barna- og ungmennabóka:
Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir: Mömmuskipti, útg. Mál og menning
Gunnar Helgason og Rán Flygenring myndhöfundur: Bannað að drepa, útg. Mál og menning
Hildur Knútsdóttir: Hrím, útg. JPV útgáfa
Embla Bachmann: Stelpur stranglega bannaðar!, útg. Bókabeitan
Sævar Helgi Bragason og Elías Rúni myndhöfundur: Vísindalæsi - Hamfarir á jörðinni, útg. JPV útgáfa
 
Dómnefnd fyrir tilnefningar skipuðu: Ásgerður Júlíusdóttir, Hjalti Freyr Magnússon, formaður dómnefndar, og Hrönn Sigurðardóttir Erludóttir.
 
Eftirfarandi höfundar voru tilnefndir í flokki fræðibóka og rita almenns efnis:
Elsa E. Guðjónsson og Lilja Árnadóttir: Með verkum handanna - Íslenskur refilsaumur fyrri alda, útg. Þjóðminjasafn Íslands
Guðmundur Magnússon: Séra Friðrik og drengirnir hans – Saga æskulýðsleiðtoga, útg. Ugla útgáfa
Haraldur Sigurðsson: Samfélag eftir máli - Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi, útg. Sögufélag
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir: Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg - Baráttusaga Guðrúnar Jónsdóttur, útg. Vaka Helgafell
Þórður Helgason: Alþýðuskáldin á Íslandi - Saga um átök, útg. Hið íslenska bókmenntafélag
 
Dómnefnd fyrir tilnefningar skipuðu: Bessý Jóhannsdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður dómnefndar og Þorvaldur Sigurðsson.
 
Eftirfarandi höfundar voru tilnefndir í flokki skáldverka:
Auður Ava Ólafsdóttir: DJ Bambi, útg. Benedikt bókaútgáfa
Bjarni M. Bjarnason: Dúnstúlkan í þokunni, útg. Veröld
Eiríkur Örn Norðdahl: Náttúrulögmálin, útg. Mál og menning
Steinunn Sigurðardóttir: Ból, útg. Mál og menning
Vilborg Davíðsdóttir: Land næturinnar, útg. Mál og menning
 
Dómnefnd fyrir tilnefningar skipuðu: Guðrún Birna Eiríksdóttir, Hlynur Páll Pálsson  og Steingerður Steinarsdóttir sem jafnframt var formaður dómnefndar.
 
Íslensku bókmenntaverðlaunin
Íslensku bókmenntaverðlaununum var komið á fót árið 1989 í tilefni af 100 ára afmæli Félags íslenskra bókaútgefenda sem stofnað var í Reykjavík í janúar 1889. Fyrsta árið var verðlaununum ekki skipt í flokka en tilnefndar alls 10 bækur. Fyrsti verðlaunahafinn var ljóðskáldið Stefán Hörður Grímsson sem hlaut verðlaunin fyrir bókina Yfir heiðan morgun. Árið eftir var tilhögun verðlaunanna breytt þannig að tilnefndar bækur skiptust í tvo flokka, fagurbækur annars vegar og fræðibækur og rit almenns efnis hins vegar. Þannig héldust verðlaunin til ársins 2013 en þá var bætt við flokki barna- og ungmennabóka. Árið 2020 var flokki fagurbóka eða fagurbókmennta eins og einnig var notað, breytt í flokk skáldverka. Árið 2022 tók Félag íslenskra bókaútgefenda að sér framkvæmd og fjármögnun Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans. Verðlaunaveiting þeirra og tilnefningar fara fram samhliða Íslensku bókmenntaverðlaununum.
 
Tilnefningar eru kynntar þann 1. desember ár hvert og verðlaunin síðan veitt síðla janúar eða í upphafi febrúar. Óháðar tilnefninganefndir, skipaðar þremur dómbærum fulltrúum hver, velja þær fimm bækur í hverjum flokki sem helst þykja skara fram úr. Lokaval er í höndum formanna nefndanna fjögurra og forsetaskipaðs dómnefndarformanns. Velja þeir eina bók úr hverjum flokki þannig að þrjár bækur hljóta á endanum Íslensku bókmenntaverðlaunin og ein Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann. Forseti Íslands afhendir verðlaunin á Bessastöðum við hátíðlega athöfn. Allir sem gefa út bækur á Íslandi geta lagt fram bækur til verðlaunanna sama ár og þær koma út, hvort sem þeir eru í Félagi íslenskra bókaútgefenda eða ekki, og greiða fyrir það hóflegt gjald. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir höfund hvers verðlaunaverks.
 
Þeir sem hlotið hafa Íslensku bókmenntaverðlaunin eru:
1989 Stefán Hörður Grímsson
1990 Fríða Á. Sigurðardóttir og Hörður Ágústsson
1991 Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson
1992 Þorsteinn frá Hamri og Vésteinn Ólason, Guðrún Nordal, Sverrir Tómasson
1993 Hannes Pétursson og Jón G. Friðjónsson
1994 Vigdís Grímsdóttir og Silja Aðalsteinsdóttir
1995 Steinunn Sigurðardóttir og Þór Whitehead
1996 Böðvar Guðmundsson og Þorsteinn Gylfason
1997 Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson
1998 Hörður Ágústsson og Thor Vilhjálmsson
1999 Andri Snær Magnason og Páll Valsson
2000 Gyrðir Elíasson og Guðmundur Páll Ólafsson
2001 Hallgrímur Helgason og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
2002 Ingibjörg Haraldsdóttir og Pétur M. Jónasson, Páll Hersteinsson
2003 Ólafur Gunnarsson og Guðjón Friðriksson
2004 Auður Jónsdóttir og Halldór Guðmundsson
2005 Jón Kalman Stefánsson og Kristín G. Guðnadóttir, Gylfi Gíslason, Arthur C. Danto, Matthías Johannessen, Silja Aðalsteinsdóttir og Eiríkur Þorláksson
2006 Ólafur Jóhann Ólafsson og Andri Snær Magnason
2007 Sigurður Pálsson og Þorsteinn Þorsteinsson
2008 Einar Kárason og Þorvaldur Kristinsson
2009 Guðmundur Óskarsson og Helgi Björnsson
2010 Gerður Kristný og Helgi Hallgrímsson
2011 Guðrún Eva Mínervudóttir og Páll Björnsson
2012 Eiríkur Örn Norðdahl og Gunnar F. Guðmundsson
2013 Andri Snær Magnason, Guðbjörg Kristjánsdóttir og Sjón
2014 Bryndís Björgvinsdóttir, Snorri Baldursson og Ófeigur Sigurðsson
2015 Gunnar Helgason, Gunnar Þór Bjarnason, og Einar Már Guðmundsson
2016 Hildur Knútsdóttir, Ragnar Axelsson og Auður Ava Ólafsdóttir
2017 Áslaug Jónsdóttir, Rakel Helmsdal og Kalle Güettler, Unnur Þóra Jökulsdóttir og
Kristín Eiríksdóttir.
2018 Sigrún Eldjárn, Hörður Kristinsson, Þóra Ellen Þórhallsdóttir, Jón Baldur Hlíðberg og Hallgrímur Helgason.
2019 Bergrún Íris Sævarsdóttir, Jón Viðar Jónsson, og Sölvi Björn Sigurðsson.
2020 Arndís Þórarinsdóttir, Hulda Sigrún Bjarnadóttir, Sumarliði R. Ísleifsson og Elísabet Kristín Jökulsdóttir
2021 Þórunn Rakel Gylfadóttir, Sigrún Helgadóttir og Hallgrímur Helgason
2022 Arndís Þórarinsdóttir, Ragnar Stefánsson og Pedro Gunnlaugur Garcia
2023 Gunnar Helgason og Rán Flygenring, myndhöfundur, Haraldur Sigurðsson og Steinunn Sigurðardóttir
 
Samtals hafa frá upphafi 82 höfundar fengið verðlaunin, eftirfarandi oftar en einu sinni: Andri Snær Magnason (3), Hallgrímur Helgason (3), Guðjón Friðriksson (3), Arndís Þórarinsdóttir (2), Guðbergur Bergsson (2), Gunnar Helgason (2), Hörður Ágústsson (2) og Silja Aðalsteinsdóttir (2) og Steinunn Sigurðardóttir (2).
 
Þeir sem hlotið hafa Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann eru:
 
2007 Stefán Máni (útg. 2006)
2008 Arnaldur Indriðason (útg. 2007)
2009 Ævar Örn Jósepsson (útg. 2008)
2010 Helgi Ingólfsson (útg. 2009)
2011 Yrsa Sigurðardóttir (útg. 2010)
2012 Sigurjón Pálsson (útg. 2011)
2013 Stefán Máni (útg. 2012)
2014 Stefán Mani (útg. 2013)
2015 Yrsa Sigurðardóttir (útg. 2014)
2016 Óskar Guðmundsson (útg. 2015)
2017 Arnaldur Indriðason (útg. 2016)
2018 Lilja Sigurðardóttir (útg. 2017)
2019 Lilja Sigurðardóttir (útg. 2018)
2020 Sólveig Pálsdóttir (útg. 2019)
2021 Yrsa Sigurðardóttir (útg. 2020)
2022 Ragnheiður Gestsdóttir (útg. 2021)
2022 Skúli Sigurðsson
2023 Eva Björg Ægisdóttir
 
Ártal Blóðdropans miðaðist við afhendingarár verðlauna en ekki útgáfuár bókar fram til ársins 2023 þegar árinu var breytt til samræmis við útgáfuár verðlaunabókar, líkt og í tilviki Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Samtals hafa frá upphafi 12 rithöfundar fengið verðlaunin, eftirfarandi oftar en einu sinni: Stefán Máni (3), Yrsa Sigurðardóttir (3), Arnaldur Indriðason (2) og Lilja Sigurðardóttir (2).
No video selected.