Aug18

Framlagning bóka til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans

Skráning og móttaka framlagðra bóka til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans er hafin hér: skráning bóka.

Dómnefndareintök:
Skila þarf þemur endanlega fullbúnum eintökum framlagðra bóka fyrir dómnefnd til eignar fyrir 1. desember. Þetta á einnig við þó að handriti hafi þegar verið komið til dómnefndar á öðru formi. Skila þarf fimm fullbúnum eintökum til viðbótar fyrir lokadómnefnd, hljóti bók tilnefningu. Dómnefndareintök eru hluti af þátttökukostnaði og ekki endurkræf. Tekið er við dómnefndareintökum á skrifstofu félagsins, Barónsstíg 5, 2. hæð. 
 
Verðskrá vegna framlagningar bóka til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans:
  • 3 dómnefndareintök eða PDF sem berst í ágúst kr. 30.000,-
  • 3 dómnefndareintök eða PDF sem berst í september kr. 33.500,-
  • 3 dómnefndareintök eða PDF sem berst í október kr. 44.000,-
  • 3 dómnefndareintök eða PDF sem berst fram til 14. nóvember kr. 55.000,-

Senda má PDF skjöl á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Farið verður yfir gagnatrúnað með dómnefndum varðandi PDF skjöl, nú sem áður

Frestur til að tilkynna bækur til framlagningar er til og með 2. nóvember 2026.

No video selected.