Feb13

Anna Lea Friðriksdóttir nýr formaður stjórnar Félags íslenskra bókaútgefenda

Mynd: Bryndís Loftsdóttir

Anna Lea Friðriksdóttir var kjörin nýr formaður stjórnar Félags íslenskra bókaútgefenda á aðalfundi félagsins fimmtudaginn 12. febrúar 2026. Hún er fyrsta konan sem gegnir starfi formanns hjá félaginu sem stofnað var fyrir 137 árum síðan, árið1889. Anna Lea tekur við af Heiðari Inga Svanssyni frá Iðnú útgáfu sem gegnt hefur starfinu síðast liðin átta ár, frá árinu 2018.  Anna Lea rekur bókaútgáfuna Sölku ásamt Dögg Hjaltalín og samnefnda bókaverslun við Hverfisgötu.

No video selected.