Oct06
SKRÁNING Í VEF- OG PRENTÚTGÁFU BÓKATÍÐINDA
Félag íslenskra bókaútgefenda hefur opnað nýjan gagnagrunn fyrir skráningar á nýjum bókum til birtingar í Bókatíðindum. Lokafrestur til skráningar í prentútgáfuna er liðinn en skráning í rafrænu útgáfuna er opin allan ársins hring fyrir utan vikuna 10.-13. október þegar prentvinnsla fer fram.
Verð pr. kynningu er kr. 12.500 + vsk fyrir skráningu á vefsíðuna. Skráning á vefsíðu verður virk um leið og hún er frágengin. Skráning alls texta og yfirlestur er á ábyrgð útgefanda.
Útgefendur eru beðnir að sækja um aðgang að rafrænum Bókatíðindum á netfangið fibut@fibut.is með upplýsingum um nafn útgáfu, símanúmer, kennitölu, net- og veffangi útgáfu ásamt upplýsingum um nafn eða nöfn þeirra sem bera ábyrgð á skráningu og netföngum þeirra.