Aug28

Skráning Bókatíðinda hafin

Höfundur Bryndís Loftsdóttir

Síðasti skráningadagur: 14. október 2015

Félag íslenskra bókaútgefenda annast útgáfu Bókatíðinda, sem dreift er á öll heimili á landinu um miðjan nóvember.  Hér á eftir fylgja nánari upplýsingar og leiðbeiningar um skráningu.

BREYTT BÓKATÍÐINDI 2015

Bókatíðindi 2015  verða óbreytt í uppsetningu frá í fyrra, brotinu verður þó breytt,  verður A4 (21,0x29,7 cm.), dálkar verða áfram tveir á síðu, dálkbreidd 9,25 cm. Á hverri síðu verða 12 bókakynningar. Ekki er gert ráð fyrir auglýsingum í Bókatíðindum 2015 nema á baksíðu.

Fast pláss verður fyrir hverja kynningu og þar með takmörkuð lengd á hverri kynningu, u.þ.b. 300 slög með bilum.  Bókaflokkar verða þeir sömu og á síðasta ári, en þá bættust við flokkar ungmennabóka, þýddra og íslenskra. Þessi bókaflokkur er vel þekktur erlendis frá undir nafninu young adult.

Útgáfuform verða áfram merkt með sérstökum táknum þannig að hver titill er aðeins kynntur einu sinni og þar tekin fram þau útgáfuform sem fáanleg eru, t.d. kilja, innbundin, hljóðbók, rafbók, með gormum, harðspjalda og svo framvegis. Í þeim tilfellum sem mismundandi útgefendur gefa út mismunandi form, t.d. prentaða og hljóðbók, förum við þess á leit að útgefendur skipti með sér kostnaði við birtingu. Sérstakir flokkar rafbóka og hljóðbóka falla því niður, en þær verða þó listar sérstaklega aftast í titlaskrá líkt og í fyrra.

Hér má sjá hvernig hin nýja hönnun mun líta út í smækkaðri mynd ásamt táknunum undir kápumyndinni sem gefa til kynna á hvaða útgáfuformi bókin er fáanleg:

 

Eins og áður verða  EINGÖNGU birtar kynningar á nýjum bókum í Bókatíðindum, þ.e. bókum með nýju ISBN númeri. Auk kynningartexta og myndar af kápu (eða höfundi)  birtist nafn bókar, höfundar, þýðanda þar sem við á, og útgefanda og greint er frá blaðsíðufjölda. Mikilvægt er að skrá ISBN númer þó þau komi ekki fram í prentútgáfu Bókatíðinda.
Bókum innan hvers flokks verður raðað í einfalda stafrófsröð titla.

Hér má sjá sýnishorn af því hvernig skráning getur litið út. Þegar búið er að skrá og setja inn mynd er einfaldlega smellt á „skrá nýja bók“.  Hægt er að breyta skráningu fram að lokadegi innskráningar, jafnvel þótt hakað sé í reitinn „skráningu lokið...“ Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu félagsins.

Verð og greiðsla:

Vegna útgefendaskrár aftast er beðið um póstfang, símanúmer og netfang. Skilyrði fyrir birtingu bókakynninga er að útgefendur hafi gert upp allar eldri skuldir við félagið.

Verð á kynningum verður kr. 24.950,- + vsk. fyrir hvern kubb.

Greiða þarf staðfestingargjald fyrir bókakynningar, kr. 15.000,- fyrir 20. október nk. og fullnaðaruppgjör í síðasta lagi 18. desember 2015 nema um annað sé samið.

(bankareikningur vegna staðfestingargjalds: 0515-26-560978. Kt: 560977-0269. Senda kvittun á benk@fibut.is )

 

Skilafrestur og skráning:

Kynningartextar og bókakápur þurfa að berast í allra síðasta lagi miðvikudaginn 14. okt. nk.

Texta fyrir kynningar og kápumyndum í Bókatíðindi 2015 á aðskila beint inn í gagnagrunn Bókatíðinda. Slóðin er: http://bokatidindi.oddi.is/

Hver útgefandi fær sérstakt aðgangsorð að gagnagrunni Bókatíðinda hjá skrifstofu Félags íslenskar bókaútgefenda. Aðgangsorð frá í fyrra gildir enn. Áríðandi er að senda skrifstofu nafn og netfang þess aðila sem sér um prófarkalestur.( fibut@fibut.is )

Frágangur kápumynda:

Kápumyndir skal senda inn gegnum skráningarkerfið en ef það er ekki hægt af einhverjum ástæðum, t.d. þegar um hópskráningu er að ræða, er möguleiki á að senda þær inná netfang Bókatíðinda: bokatidindi@oddi.is

Ef kápumyndir eru sendar inn gegnum skráningarkerfið þarf ekki að nefna þær sérstaklega.

Hins vegar ef kápumyndir eru sendar á ftp gildir eftirfarandi regla um heiti þeirra.
Heiti myndar þarf að byrja á því númeri sem verkið fær í bókagrunni (fremsti dálkur í lista). Notandi má bæta við stuttri lýsingu ef hann vill, með undirstrik á milli númersins og nafnsins.
Dæmi: 0546_bokin.jpg. Svo þarf að senda tölvupóst á bokatidindi@oddi.is  og tilgreina númer þeirra kápumynda sem sendar hafa verið inná ftp.

Eftirfarandi leiðbeiningar gilda um allar myndir, hvort sem sent er um skráningarsíðu eða ftp.

  • Mikilvægt er að kápumyndum sé skilað í réttri stærð og á réttu formi.
  • Myndir þurfa að vera í réttri stærð og í réttri upplausn til að þær séu nothæfar. Þær þurfa að vera 402 pixlar á breidd (3,4 cm), í 300 dpi (pixels/inch) og í RGB, sem JPG.
  • Mikilvægt er að senda einungis forsíðumynd kápu. Þ.e. ekki með innábrotum, skurðarmerkjum o.s.frv.

                                                   -----------------
Frekari upplýsingar er að finna á hjálparvef bókagrunns bókatíðinda.
Mælt er með því að allir lesi hjálparvefinn áður en byrjað er að nota bókagrunninn.
Slóðin á hjálparvefinn er http://bokatidindi.oddi.is/hjalp/
ATH. útgefendur þurfa að vera komnir með notendanafn og lykilorð að bókagrunninum til að komast í hjálparvefinn.
Skráning í gagnagrunninn er afar einföld, en ef  vandamál koma upp mun skrifstofa okkar veita frekari upplýsingar.