Aug24

Bókatíðindi 2017

Höfundur Bryndís Loftsdóttir

Móttaka skráninga hafin

Félag íslenskra bókaútgefenda mun að venju standa að útgáfu Bókatíðinda, sem dreift verður á öll heimili í landinu. Útgáfudagur og dreifing er fyrirhuguð í 3. viku nóvember 2017.

Verð á kynningu er 25.690,- + vsk.

Lokafrestur til skráningar er 17. október 2017.

Nánari upplýsingar má nálgast á skrifstofu félagsins á netfangið fibut@fibut.is 

Greiða þarf staðfestingargjald fyrir bókakynningar, kr. 20.000,- fyrir 18. október nk. og fullnaðaruppgjör í síðasta lagi 22.desember 2017 nema um annað sé samið.

  • Bankareikningur vegna staðfestingargjalds: 0515-26-560978.
  • Kt: 560977-0269
  • Senda kvittun á benk@fibut.is

Skilyrði fyrir birtingu bókakynninga er að útgefandi hafi gert upp allar eldri skuldir við félagið.

NÝTT: Stærð kápumyndar þarf að vera 804 pixlar á breidd (6,8 cm), í 300 dpi sem JPG.

 

BÓKATÍÐINDI 2017 - ÚTLIT

Bókatíðindi verða með sama sniði og í fyrra, í A4 broti. Á hverri síðu verða 10 jafnstórar bókakynningar, 9,25 cm á breidd og 5,45 cm á hæð. Ekki er gert ráð fyrir auglýsingum nema á baksíðu.

Fast pláss verður fyrir hverja kynningu, lengd kynningartexta má vera um það bil 350 slög með bilum. Mögulegt er að kynna fleiri en einn titil í kynningu, t.d. ef um bókaflokk er að ræða. Tveimur eða fleiri kápumyndum er þá þjappað saman og einn kynningartexti saminn um bókaflokkinn. Þetta kallast  hópskráning, nánari upplýsingar fást á skrifstofu FIBUT og sjá má dæmi í eldri Bókatíðindum

Útgáfuform verða áfram merkt með sérstökum táknum þannig að hver titill er aðeins kynntur einu sinni og þar tekin fram þau útgáfuform sem fáanleg eru. Í þeim tilfellum sem mismundandi útgefendur gefa út mismunandi form sömu bókar, t.d. prentaða og hljóðbók, förum við þess á leit að útgefendur skipti með sér kostnaði við birtingu. Raf- og hljóðbækur verða listaðar sérstaklega aftast í titlaskrá líkt og áður.

Eingöngu verða kynningar á nýjum bókum í Bókatíðindum, þ.e. bókum með nýju ISBN númeri. Auk kynningartexta og myndar af kápu, birtist nafn bókar, höfundar, þýðanda eða upplesara þar sem við á, og útgefanda og greint er frá blaðsíðufjölda eða hljóðbókalengd. Mikilvægt er að skrá ISBN númer þó þau komi ekki fram í prentútgáfu Bókatíðinda. Bókum innan hvers flokks verður raðað í einfalda stafrófsröð titla. Flokkar verða óbreyttir frá 2016.

Í skráningu er sjálfkrafa gert ráð fyrir því að aðstandendur bóka séu íslenskir. Mikilvægt að afhaka reitinn „ísl“ ef aðstandandi bókar er erlendur. Hann mun þá raðast í höfundaskrá eftir eftirnafni. Vegna útgefendaskrár aftast er beðið um póstfang, símanúmer og netfang útgefanda.

 

BÓKATÍÐINDI 2017 - SKRÁNING

Allri skráningu á texta og kápumyndum í Bókatíðindi á að skila beint inn í gagnagrunn Bókatíðinda. Slóðin er: http://bokatidindi.oddi.is/

Hver útgefandi fær sérstakt aðgangsorð að gagnagrunni Bókatíðinda hjá skrifstofu Félags íslenskar bókaútgefenda. Aðgangsorð frá því í fyrra gildir enn. Áríðandi er að senda skrifstofu nafn og netfang þess aðila sem á að lesa kynninguna yfir og samþykkja til birtingar á netfangið fibut@fibut.is ef það er annað en skráð netfang útgáfunnar.

Þegar búið er að skrá og setja inn mynd er einfaldlega smellt á „skrá nýja bók“ sem er vistunarhnappur.  Hægt er að breyta skráningu fram að lokadegi innskráningar, jafnvel þótt hakað sé í reitinn „skráningu lokið“.

  

Varðandi frágang kápumynda fyrir bókagrunn bókatíðinda 2017.
Kápumyndir skal senda inn gegnum skráningarkerfið en ef það er ekki hægt af einhverjum ástæðum er möguleiki á að senda þær inná netfang Bókatíðinda: bokatidindi@oddi.is

 

Eftirfarandi reglur gilda um myndir sem sendar eru með tölvupósti:
Heiti myndar þarf að byrja á því númeri sem verkið fær í bókagrunni (fremsti dálkur í lista). Notandi má bæta við stuttri lýsingu ef hann vill, með undirstrik á milli númersins og nafnsins.
Dæmi: 0546_bokin.jpg
Svo þarf að senda tölvupóst á bokatidindi@oddi.is  og tilgreina númer allra kápumynda sem sendar hafa verið með tölvupósti.

Eftirfarandi leiðbeiningar gilda um allar myndir:

1) Mikilvægt er að kápumyndum sé skilað í réttri stærð og á réttu formi.

2) Myndir þurfa að vera 804 pixlar á breidd (6,8 cm), í 300 dpi (pixels/inch) og í RGB, sem JPG.

3) Mikilvægt er að senda einungis forsíðumynd kápu. Ekki innábrot og skurðarmerki.


Frekari upplýsingar er að finna á hjálparvef bókagrunns Bókatíðinda eða hjá starfsfólki skrifstofu FIBUT.