Aug21
Vilt þú starfa í dómnefnd Íslensku bókmenntaverðlaunanna?
Við leitum eftir einstaklingum á ólíkum aldri, með fjölbreyttan bakgrunn og menntun, til þess að velja athyglisverðustu bækur ársins í dómnefnd Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Laun fyrir nefndarsetu eru kr. 125.000 auk þess sem nefndarmeðlimir fá allar framlagðar bækur í sínum flokki til eignar. Starfstímabilið er frá 10. september til 25. nóvember 2020.
Horft er til 2. kafla, 3. gr. stjórnsýslulaga varðandi hæfi dómnefndarfólks sem tengist höfundum eða útgefendum framlagðra verka, sjá; https://www.althingi.is/lagas/nuna/1993037.html
Áhugasamir lesendur eru beðnir um að skrá sig hér: https://forms.gle/vn4CUVCWXn4ecwfD6
Tekið er á móti skráningum til og með 31. ágúst.