Íslensku bókmenntaverðlaunin
sem forseti Íslands afhendir
Stofnuð af Félagi íslenskra bókaútgefenda í tilefni af 100 ára afmæli þess 12.jan.1989.
I. Tilgangur
Tilgangur Íslensku bókmenntaverðlaunanna er að styrkja stöðu frumsaminna íslenskra bóka, efla vandaða bókaútgáfu, auka umfjöllun um bókmenntir í fjölmiðlum og hvetja almenna lesendur til umræðna um bókmenntir.
II. Val bóka til samkeppni
Hver sá sem gefur út bækur á þess kost að tilnefna þær af útgáfubókum sínum sem hann óskar að komi til álita, samkvæmt nánari reglum sem stofnendur verðlaunanna setja samhliða þessari reglugerð. Verðlaunin skiptast í þrjá flokka, fagurbókmenntir, fræðirit og bækur almenns efnis og barna- og unglingabækur. Við tilnefningu skal tekið fram hvort um er að ræða
A Frumsamin íslensk skáldverk, laust mál eða ljóð, fyrir fullorðna.
B Önnur íslensk ritverk, fræðirit, frásagnir, handbækur fyrir fullorðna og hver þau verk sem að jafnaði teljast ekki skáldverk eða fagurbókmenntir.
C Frumsamin íslensk verk fyrir börn og unglinga.
III. Val athyglisverðustu bóka ársins
Um mánaðamót nóvember/desember verða valdar fimmtán athyglisverðustu bækur ársins, fimm úr hverjum flokki. Níu dómarar, þrír fyrir hvern flokk, annast valið.
Félag íslenskra bókaútgefenda skipar valinkunna menn til starfans, og tilnefnir þrjá þeirra sem formenn nefndanna.
Eigi skulu sömu menn starfa sem dómarar lengur en þrjú ár samfleytt og líða skulu a.m.k. tvö ár frá dómarastörfum áður en menn koma til þeirra á ný.
IV. Val verðlaunabóka ársins
Lokadómnefnd skal skipuð formönnum þeirra þriggja nefnda er áður er getið, auk fulltrúa skipuðum af forseta Íslands og er sá jafnframt formaður lokadómnefndar.
Dómnefndin velur eina bók úr hverjum flokki til verðlauna sem forseti Íslands afhendir við hátíðlega athöfn eigi síðar en 15. febrúar.
V. Verðlaunafé
Verðlaunafjár er aflað samkvæmt stofnskrá settri af Félagi íslenskra bókaútgefenda.
Samkv. stjórnarsamþykkt 8. júní 1993
Reglur frá 1990 með áorðnum breytingum 1991, 1993, 2000, 2002 og 2013.