Bókatíðindi

Vefræn Bókatíðindi má nú finna á bokatidindi.is

Hægt er að opna PDF útgáfu Bókatíðinda 2022 með því að fara inn á síðuna hér og smella á hnappinn neðst til hægri, þar sem letrað er "Sækja PDF útgáfu".

Hægt er að nálgast prentað eintak af Bókatíðindum í bókaverslun Forlagsins á Fiskislóð, bókabúð Sölku við Hverfisgötu og á skrifstofu félagsins á Barónsstíg 5.

Fyrir útgefendur

Félag íslenskra bókaútgefenda hefur opnað nýjan gagnagrunn fyrir skráningar á nýjum bókum til birtingar í Bókatíðindum. Skráning í rafrænu útgáfuna er opin allan ársins hring.

Verð pr. kynningu er kr. 12.500 + vsk fyrir skráningu á vefsíðuna og kr. 19.500 + vsk fyrir skráningu í prentuðu útgáfuna eða samtals kr. 32.000 án vsk fyrir skráningu bæði á vefsíðu og í prentútgáfu. Skráning á vefsíðu verður virk um leið og hún er frágengin. Skráning alls texta og yfirlestur er á ábyrgð útgefanda.

Útgefendur eru beðnir um að sækja um aðgang að rafrænni skráningu á netfangið fibut@fibut.is með upplýsingum um nafn útgáfu, símanúmer, kennitölu, net- og veffangi útgáfu ásamt upplýsingum um nafn eða nöfn þeirra sem bera ábyrgð á skráningu og netföngum þeirra.